Vefverslun RV

Stofna viðskiptavin í vefverslun RV:

Smelltu á "Innskráning", efst hægra megin á síðunni, þar skráir þú þig inn með þínum persónulegu rafrænum skilríkjum. Ef versla á fyrir fyrirtæki eða stofnun velur að þú tengjast fyrirtæki og óskar þannig eftir tengingu við þitt fyrirtæki. Þegar sú tenging er komin færðu tölvupóst og getur verslað fyrir þinn vinnustað.

Einnig getur þú haft samband við þjónustuver RV í síma 520 6666 eða sent okkur tölvupóst á vefverslun@rv.is og við aðstoðum þig við skráninguna.

Reikningsviðskipti

Fyrirtækjum í föstum viðskiptum við RV sem verslað hafa fyrir kr. 300.000. - án vsk eða meira á síðastliðnum 12 mánuðum, stendur til boða mánaðarleg reikningsviðskipti. Smelltu hér til að hefja umsókn um reikningsviðskipti hjá RV.

Frír flutningur

Rekstrarvörur bjóða viðskiptavinum sínum sem versla á RV.is frían flutning þegar verslað er fyrir meira en 35.000 kr. án vsk. á höfuðborgarsvæðinu, en 60.000 kr. án vsk utan höfuðborgarsvæðisins. Ef EKKI er pantað gegnum RV.is þá er lágmarkið til að fá frían flutning 50.000 kr án vsk innan höfuðborgarsvæðisins og 80.000 kr. án vsk utan höfuðborgarsvæðisins.

Vörur sem eru pantaðar eftir kl. 16:00 á föstudögum verða afgreiddar næsta virkan dag. 

Einfalt og þægilegt að sækja pantanir í verslun okkar að  Réttarhálsi 2, 110 Reykjavík.

Verslun RV er opin virka daga kl. 8 - 17 og laugardaga kl. 11 - 15