Sjúkratryggingar og Skírteini
Ráðgjöf og þjónusta við Heilbrigðistofnanir og skjólstæðinga SÍ.
Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) eru með samning við Rekstrarvörur (RV) um að skírteinishafar sem eiga rétt á hjálpargögnum snúi sér beint til RV til þess að fá afgreiddar bleiur og tengd hjálpargögn, með greiðsluþátttöku SÍ.
(smelltu hér til að sjá vörurnar sem Sjúkratryggingar Íslands greiða niður)
Skjólstæðingum SÍ býðst að kaupa vörur með greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga Íslands í verslun okkar að Réttarhálsi 2 eða með símpöntun í síma 520 6666 þar sem við aðstoðum ykkur með ánægju. Enn sem komið er er greiðsluþátttaka SÍ ekki í boði í vefverslun Rekstrarvara.
Skjólstæðingum SÍ er boðið uppá heimsendingarþjónustu 1x í mánuði að kostnaðarlausu.
Þeir sem eiga rétt á skírteini frá SÍ þurfa að sækja um það í samráði við lækni. Skírteinið tryggir skjólstæðingum 100 % greiðsluþátttöku í samningsvörum SÍ.
Sjá nánar: sjukra.is
Öllum býðst að koma til RV og fá faglega og persónulega aðstoð ásamt ráðleggingum um TENA þvaglekavörur.
Fræðsla og Aðstoð
Hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar og aðrir sérhæfðir starfsmenn í þjónustuveri RV, með margra áratuga reynslu í ráðgjöf og umönnun, sjá um fræðslu og aðstoð við einstaklinga um val á réttum þvaglekavörum.
Í verslun RV er viðtalsherbergi þar sem hægt er að ræða þarfir hvers og eins í ró og næði. Einnig geta skjólstæðingar SÍ fengið sýnishorn af hjálpargögnum, upplýsingabæklinga og fleira.
Ásdís Ósk Heimisdóttir og Ragnhildur Dóra Elíasdóttir hjúkrunarfræðingar RV, ásamt Marsibil Sigurðardóttir sjúkraliði RV, leiðbeina skjólstæðingum Sjúkratrygginga Íslands og aðstandendum þeirra ásamt því að veita ráðgjöf varðandi hjúkrunarvörur.
Sérhæft sölufólk RV tekur einnig á móti pöntunum og afgreiðir sýnishorn alla virka daga frá kl. 8 - 16. Einstaklingar með þvagleka og aðstandendur þeirra geta einnig óskað eftir því að fá sýnishorn send í pósti.
Nánari upplýsingar í síma 520 6666 eða með því að senda tölvupóst til hjukrun@rv.is
Húsnæði RV að Réttarhálsi 2, 110 Reykjavík er aðgengilegt fyrir fatlaða.