

Svanurinn í daglegum rekstri
Svansdagar 2026 eru hafnir og af því tilefni beinum við sjónum að Svansvottuðum vörum fyrir vinnustaðinn. Þær leynast víðar en margir halda - allt frá ræstingu og uppvaski yfir í hand- og persónulegt hreinlæti.


Svansdagar 2026 eru hafnir og af því tilefni beinum við sjónum að Svansvottuðum vörum fyrir vinnustaðinn. Þær leynast víðar en margir halda - allt frá ræstingu og uppvaski yfir í hand- og persónulegt hreinlæti.


Á stöðum þar sem pappírsnotkunin er mikil skiptir máli að velja lausnir sem halda utan um bæði notkun og daglegt viðhald. Tork SmartOne hentar sérstaklega vel á fjölsóttum salernum, en kerfið hefur einnig slegið í gegn í annars konar notkun – meðal annars sem snýtipappírslausn í leikskólum.


Tork, vörumerki frá Essity, hlaut nýverið Innovation Award á Interclean Amsterdam 2026 fyrir verkefnið Inclusive Hygiene in Public Washrooms Initiative. Verðlaunin undirstrika metnað Tork til að þróa aðgengilegri og sjálfbærari hreinlætislausnir sem bæta upplifun notenda og styðja við daglegan rekstur.


Sjálfbærni er orðin mikilvægur hluti af rekstri veitingastaða, kaffihúsa og hótela. Með Svansvottuðum hreinlætislausnum geta fyrirtæki dregið úr umhverfisáhrifum án þess að gera málamiðlanir um gæði, hreinlæti eða skilvirkni.


Í áframhaldandi þróun RV PRO vörulínunnar hefur RV PRO glerhreinsirinn hlotið Svansvottun og uppfyllir þar með strangar kröfur Norræna Svansins um umhverfisáhrif, virkni og efnainnihald.


Í tilefni Svansdaganna vekja Rekstrarvörur athygli á fjölbreyttu úrvali Svansvottaðra lausna fyrir vinnustaði. Með því að velja vörur sem bera Norræna Svansmerkið geta fyrirtæki sameinað árangursrík þrif, ábyrga auðlindanýtingu og minni umhverfisáhrif.