Rekstrarvörur og Metta hefja samstarf - kynnum nýja lausn á Stóreldhúsinu 2026
Stóreldhúsið 2026 hefst í Laugardalshöll í dag, 5. nóvember, og við hjá Rekstrarvörum erum spennt að kynna nýtt samstarf við íslenska hugbúnaðarfyrirtækið Mettu. Með samstarfinu bætist stafræn lausn fyrir innra eftirlit við fjölbreytt úrval okkar af vörum og lausnum fyrir atvinnueldhús.
Rekstrarvörur5. nóvember 2026
Innra eftirlit þarf ekki að vera flókið
Þrifaskráningar, hitamælingar, gátlistar og eftirfylgni eru mikilvægur hluti af daglegum rekstri atvinnueldhúsa. En utanumhaldið þarf hvorki að vera flókið né tímafrekt.
Metta er íslenskt, stafrænt stjórnunar- og innra eftirlitskerfi, þróað af fagfólki sem þekkir rekstur atvinnueldhúsa af eigin raun.
Kerfið heldur utan um þrif, hitamælingar, atvikaskráningar og aðra mikilvæga þætti innra eftirlits á einum stað. Starfsfólk getur skráð verkefni jafnóðum í síma eða spjaldtölvu og stjórnendur fengið skýra yfirsýn yfir stöðu verkefna og framkvæmd eftirlitsins.
Færri möppur, minni pappírsvinna og betri yfirsýn – svo meiri tími gefist fyrir það sem skiptir máli í eldhúsinu.
Ný viðbót við lausnir Rekstrarvara
Við hjá Rekstrarvörum höfum um áratugaskeið þjónustað íslensk atvinnueldhús með fjölbreyttum hreinlætis- og rekstrarlausnum. Með samstarfinu við Mettu tökum við enn eitt skrefið í átt að heildstæðari þjónustu við okkar viðskiptavini.
Samstarfið sameinar þekkingu okkar á hreinlæti og daglegum rekstri atvinnueldhúsa og stafrænar lausnir Mettu, með það að markmiði að einfalda verklag og styðja við öruggt og skilvirkt innra eftirlit.
„Innan matvælageirans eru gerðar ríkar kröfur um hreinlæti og rétt verklag, og þar hefur RV verið leiðandi bakhjarl stóreldhúsa í áratugi,“ segir Sigurlaug Þóra Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri Rekstrarvara.
“Með því að gerast samstarfsaðili Mettu getum við boðið viðskiptavinum okkar upp á heildstæða lausn.”
Með samstarfinu geta viðskiptavinir RV því ekki aðeins fengið hágæða hreinlætis- og rekstrarvörur, heldur einnig nútímalegt kerfi til að halda utan um innra eftirlit á einfaldan og skilvirkan hátt.
Metta býður upp á mismunandi lausnir eftir umfangi og þörfum rekstrarins, allt frá daglegum skráningum og gátlistum til ítarlegri gæðastjórnunar og sjálfvirkrar hitavöktunar.
Komdu og kynntu þér Mettu á Stóreldhúsinu!
Stóreldhúsið 2026 er að hefjast og við hlökkum til að taka á móti gestum í Laugardalshöll dagana 5.–6. nóvember.
Á sýningunni kynnum við samstarfið og gefum gestum tækifæri til að sjá hvernig Metta virkar í framkvæmd. Hvort sem þú rekur veitingastað, mötuneyti, hótel eða annað atvinnueldhús er tilvalið að koma við, kynna sér kerfið og ræða hvaða lausnir henta þínum rekstri.
Kemstu ekki á Stóreldhúsið?
Þú getur kynnt þér Mettu nánar og óskað eftir persónulegri kynningu á lendingarsíðunni okkar:
Nýjar WaterHog® Diamond mottur eru komnar til Rekstrarvara – ásamt MatGrip™, nýstárlegu segulkerfi sem heldur mottunni tryggilega á sínum stað. Snjöll lausn fyrir fjölfarna innganga þar sem bleyta, óhreinindi og mikil umferð gera meiri kröfur til mottunnar.
Enn er tími til að nýta uppítökutilboð Rekstrarvara sem gildir út september 2026. Við verðmetum eldri ræstibúnað frá hvaða framleiðanda sem er og inneignin nýtist við kaup á nýjum búnaði.
Í áframhaldandi þróun RV PRO vörulínunnar hefur RV PRO glerhreinsirinn hlotið Svansvottun og uppfyllir þar með strangar kröfur Norræna Svansins um umhverfisáhrif, virkni og efnainnihald.