
metta
Stjórnstöð atvinnueldhússins.
Allt skráð. Allt rekjanlegt. Alltaf tilbúið fyrir úttekt.
Metta er íslenskt, stafrænt kerfi sem einfaldar innra eftirlit og daglegan rekstur atvinnueldhúsa. Þrif, hitamælingar, atvik og annað eftirlit á einum stað - aðgengilegt í síma, spjaldtölvu eða tölvu.
Færri möppur, minni pappírsvinna og betri yfirsýn svo þú getir einbeitt þér að eldhúsinu.

Byggt af fagfólki - fyrir fagfólk.
Metta er þróað af fólki sem þekkir daglegan rekstur atvinnueldhúsa af eigin raun. Kerfið er hannað til að einfalda innra eftirlit og halda utan um allt frá þrifum og hitamælingum til atvikaskráninga, viðhalds og öryggismála.
Starfsfólk fær skýra yfirsýn yfir verkefni dagsins og getur skráð framkvæmd jafnóðum. Stjórnendur sjá hvað hefur verið gert, hvað er fram undan og hvar þarf að bregðast við. Allar upplýsingar eru aðgengilegar á einum stað, sem auðveldar eftirfylgni og undirbúning fyrir úttektir.
Innra eftirlitið er mikilvægt, en þarf ekki að vera flókið.
Sjáðu hvað Metta getur gert fyrir þitt eldhús.
Viltu kynna þér kerfið betur? Á metta.is finnur þú nánari upplýsingar um eiginleika kerfisins og kynningarefni.