Fara beint í efni

Rekstrarvörur meðal Fyrirmyndarfyrirtækja VR annað árið í röð

Rekstrarvörur hafa hlotið viðurkenningu VR sem Fyrirmyndarfyrirtæki ársins 2024. Þetta er annað árið í röð sem fyrirtækið hlýtur viðurkenninguna sem byggir á mati starfsfólks á vinnustaðnum.

Rekstrarvörur kóróna
Rekstrarvörur16. september 2024

Rekstrarvörur hafa hlotið viðurkenningu VR sem Fyrirmyndarfyrirtæki ársins 2024. Þetta er annað árið í röð sem fyrirtækið hlýtur þessa viðurkenningu, sem byggir á niðurstöðum einnar stærstu vinnumarkaðskönnunar landsins.

Viðurkenning VR sem Fyrirmyndarfyrirtæki ársins byggir á viðhorfi starfsfólks til fjölmargra þátta í starfsumhverfinu, meðal annars stjórnun, samskiptum, starfsanda, starfsánægju og þróun í starfi.

Fyrirtæki ársins er stærsta vinnumarkaðskönnun landsins og veitir mikilvæga innsýn í upplifun starfsfólks á sínum vinnustað. Niðurstöðurnar byggja alfarið á svörum starfsfólks og endurspegla því reynslu þeirra sem starfa innan fyrirtækisins.

Það er Rekstrarvörum mikill heiður að hljóta þessa viðurkenningu annað árið í röð. Hún er staðfesting á þeirri áherslu sem lögð er á jákvætt starfsumhverfi, öflugt samstarf og vinnustaðamenningu þar sem starfsfólk fær tækifæri til að vaxa og þróast.

Við viljum þakka öllu okkar frábæra starfsfólki fyrir þeirra framlag, metnað og traust. Árangurinn er sameiginlegur og hvetur okkur til að halda áfram að byggja upp vinnustað þar sem fólki líður vel og getur notið sín í starfi.

Á myndinni eru Sigurlaug Þóra, framkvæmdastjóri Rekstrarvara, Sigríður Bára, annar stofnenda Rekstrarvara, og Þórunn Helga, mannauðsstjóri Rekstrarvara, við afhendingu viðurkenningarinnar.

Tengdar fréttir

Jafnvægisvogin 2026 - Emma Soffía

Losum um hnútinn – Jafnvægisvogin 2026

Rekstrarvörur kóróna
Rekstrarvörur

Rekstrarvörur voru meðal 163 fyrirtækja, stofnana og sveitarfélaga sem hlutu viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir kynjajafnvægi í efsta lagi stjórnunar. Viðurkenningarnar voru afhentar við hátíðlega athöfn í Hátíðasal Háskóla Íslands þann 14. október, þar sem yfirskriftin í ár var „Losum um hnútinn“.

Þekkingin fær meira pláss

Emma Soffía Helgudóttir

Áratuga reynsla og þekking býr innan Rekstrarvara og nú ætlum við að gefa meira af henni pláss á RV.is. Nýr frétta- og fróðleikshluti sameinar fræðslu, reynslu, nýjungar og fréttir úr ólíkum áttum starfseminnar.