Fara beint í efni

Losum um hnútinn – Jafnvægisvogin 2026

Rekstrarvörur voru meðal 163 fyrirtækja, stofnana og sveitarfélaga sem hlutu viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir kynjajafnvægi í efsta lagi stjórnunar. Viðurkenningarnar voru afhentar við hátíðlega athöfn í Hátíðasal Háskóla Íslands þann 14. október, þar sem yfirskriftin í ár var „Losum um hnútinn“.

Rekstrarvörur kóróna
Rekstrarvörur20. október 2026
Jafnvægisvogin 2026 - Emma Soffía

Emma Soffía Helgudóttir, markaðsstjóri Rekstrarvara, tók við viðurkenningunni fyrir hönd fyrirtækisins við hátíðlega athöfn.

Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA) sem hefur það að markmiði að stuðla að jafnari kynjahlutföllum í stjórnunarstöðum íslenskra fyrirtækja og stofnana. Viðurkenningin er veitt þeim þátttakendum sem hafa náð að minnsta kosti 40/60 kynjahlutfalli í efsta stjórnendalagi.

Jafnvægisvogin 2026 - Mynd: Silla Páls

Frá viðurkenningarhátíð Jafnvægisvogarinnar 2026 í Hátíðasal Háskóla Íslands. Mynd: Silla Páls.

Yfirskriftin „Losum um hnútinn“ vísar til þess að jafnrétti gerist ekki af sjálfu sér, heldur krefjist meðvitaðra ákvarðana og þátttöku stjórnenda.

Viðurkenningin er ánægjuleg staðfesting á kynjajafnvægi í stjórnendahópi Rekstrarvara og hvatning til að halda áfram að stuðla að jafnrétti og jöfnum tækifærum innan fyrirtækisins.

Tengdar fréttir

Rekstrarvörur hljóta Jafnvægisvog FKA 2025

Rekstrarvörur

Rekstrarvörur hlutu Jafnvægisvog FKA árið 2025, viðurkenningu sem veitt er fyrirtækjum sem hafa náð fram góðu jafnvægi kynja í efsta lagi stjórnunar. Viðurkenningin endurspeglar áherslu fyrirtækisins á jafnrétti, fjölbreytni og öflugt starfsumhverfi.