Fara beint í efni

Rekstrarvörur hljóta Jafnvægisvog FKA 2025

Rekstrarvörur hlutu Jafnvægisvog FKA árið 2025, viðurkenningu sem veitt er fyrirtækjum sem hafa náð fram góðu jafnvægi kynja í efsta lagi stjórnunar. Viðurkenningin endurspeglar áherslu fyrirtækisins á jafnrétti, fjölbreytni og öflugt starfsumhverfi.

Rekstrarvörur kóróna
Rekstrarvörur13. október 2025

Rekstrarvörur eru stolt af því að hafa hlotið Jafnvægisvog FKA 2025, viðurkenningu sem veitt er fyrirtækjum sem uppfylla markmið verkefnisins um jafnt kynjahlutfall í efsta lagi stjórnunar.

Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA) og hefur frá árinu 2019 hvatt fyrirtæki, opinbera aðila og sveitarfélög til að stuðla að fjölbreyttari og jafnari stjórnun. Árið 2025 hlutu alls 128 þátttakendur viðurkenninguna, þar af 90 fyrirtæki, 22 opinberir aðilar og 16 sveitarfélög.

Viðurkenningin var afhent á árlegri hátíð Jafnvægisvogarinnar þar sem jafnframt var fjallað um mikilvægi fjölbreytni og jafnréttis í íslensku atvinnulífi. Fyrir hönd Rekstrarvara tók Emma Soffía Helgudóttir, markaðsstjóri, við viðurkenningunni.

Hjá Rekstrarvörum er lögð áhersla á að skapa vinnustað þar sem hæfni, fagmennska og fjölbreytt sjónarmið fá að njóta sín. Við teljum að fjölbreyttur hópur starfsfólks og stjórnenda stuðli að betri ákvarðanatöku, sterkari vinnustaðamenningu og öflugri þjónustu við viðskiptavini.

Jafnvægisvog FKA bætist við þann hóp viðurkenninga sem Rekstrarvörur hafa hlotið á undanförnum árum, þar á meðal Framúrskarandi fyrirtæki Creditinfo, Fyrirmyndarfyrirtæki VR og jafnlaunavottun. Fyrirtækið mun áfram leggja áherslu á að byggja upp vinnustað þar sem jafnrétti, fjölbreytni og fagmennska eru höfð að leiðarljósi.


Myndir: Silla Páls

Tengdar fréttir

Jafnvægisvogin 2026 - Emma Soffía

Losum um hnútinn – Jafnvægisvogin 2026

Rekstrarvörur kóróna
Rekstrarvörur

Rekstrarvörur voru meðal 163 fyrirtækja, stofnana og sveitarfélaga sem hlutu viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir kynjajafnvægi í efsta lagi stjórnunar. Viðurkenningarnar voru afhentar við hátíðlega athöfn í Hátíðasal Háskóla Íslands þann 14. október, þar sem yfirskriftin í ár var „Losum um hnútinn“.

Þekkingin fær meira pláss

Emma Soffía Helgudóttir

Áratuga reynsla og þekking býr innan Rekstrarvara og nú ætlum við að gefa meira af henni pláss á RV.is. Nýr frétta- og fróðleikshluti sameinar fræðslu, reynslu, nýjungar og fréttir úr ólíkum áttum starfseminnar.