Fara beint í efni

Nýjir leiðtogar í markaðs- og stafrænni þróun RV

Rekstrarvörur hafa styrkt markaðs- og stafrænt teymi sitt með því að fela Emmu Soffíu Helgudóttur og Karlottu Guðlaugsdóttur lykilhlutverk. Saman leiða þær þróun vörumerkisins, stafrænna lausna og upplifunar viðskiptavina.

Rekstrarvörur kóróna
Rekstrarvörur29. maí 2025

Emma Soffía Helgudóttir skipuð markaðsstjóri

Emma Soffía Helgudóttir tók við markaðsmálum Rekstrarvara síðla árs 2023 og hefur verið skipuð markaðsstjóri fyrirtækisins. Hún ber ábyrgð á markaðsstarfi RV, þar á meðal vörumerkjaþróun, efnisgerð, herferðum og stafrænni miðlun. Emma hefur einnig leitt þróun fjölmargra verkefna, meðal annars RV PRO vörulínunnar og uppbyggingu stafræns efnis fyrir fyrirtækið.

Emma er með BA-gráðu í skapandi greinum frá Háskólanum á Bifröst með áherslu á skapandi markaðssetningu.

Karlotta Guðlaugsdóttir leiðir stafræna stefnumótun

Karlotta Guðlaugsdóttir hóf störf hjá Rekstrarvörum í lok árs 2024 sem verkefnastjóri stafrænnar stefnumótunar. Hún leiðir þróun stafrænna lausna fyrirtækisins með áherslu á notendaupplifun, vefþróun og áframhaldandi þróun stafrænnar þjónustu RV.

Karlotta er með diplómu í tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík og menntun í hönnun frá Tækniskólanum.


Með styrkingu markaðs- og stafræna teymisins halda Rekstrarvörur áfram að þróa þjónustu sína með áherslu á skýrari upplýsingagjöf, betri notendaupplifun og öflugri stafrænar lausnir fyrir íslenskan atvinnurekstur.

Tengdar fréttir

Jafnvægisvogin 2026 - Emma Soffía

Losum um hnútinn – Jafnvægisvogin 2026

Rekstrarvörur kóróna
Rekstrarvörur

Rekstrarvörur voru meðal 163 fyrirtækja, stofnana og sveitarfélaga sem hlutu viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir kynjajafnvægi í efsta lagi stjórnunar. Viðurkenningarnar voru afhentar við hátíðlega athöfn í Hátíðasal Háskóla Íslands þann 14. október, þar sem yfirskriftin í ár var „Losum um hnútinn“.

Þekkingin fær meira pláss

Emma Soffía Helgudóttir

Áratuga reynsla og þekking býr innan Rekstrarvara og nú ætlum við að gefa meira af henni pláss á RV.is. Nýr frétta- og fróðleikshluti sameinar fræðslu, reynslu, nýjungar og fréttir úr ólíkum áttum starfseminnar.