Ný RV.is komin í loftið
Ný RV.is er komin í loftið og markar nýjan áfanga í stafrænni vegferð Rekstrarvara. Vefurinn færir vörur, upplýsingar og stafræna þjónustu saman á einn stað og leggur grunn að áframhaldandi þróun RV.is á næstu misserum.

Rekstrarvörur voru meðal 163 fyrirtækja, stofnana og sveitarfélaga sem hlutu viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir kynjajafnvægi í efsta lagi stjórnunar. Viðurkenningarnar voru afhentar við hátíðlega athöfn í Hátíðasal Háskóla Íslands þann 14. október, þar sem yfirskriftin í ár var „Losum um hnútinn“.

Rekstrarvörur hafa enn á ný hlotið viðurkenninguna Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri frá Viðskiptablaðinu og Keldunni. RV hefur verið á lista Fyrirmyndarfyrirtækja samfleytt frá árinu 2017.

Áratuga reynsla og þekking býr innan Rekstrarvara og nú ætlum við að gefa meira af henni pláss á RV.is. Nýr frétta- og fróðleikshluti sameinar fræðslu, reynslu, nýjungar og fréttir úr ólíkum áttum starfseminnar.