Gulur dagur hjá Rekstrarvörum
Starfsfólk Rekstrarvara tók þátt í Gulum september með því að klæðast gulu og sýna samstöðu með mikilvægu átaki um geðrækt og sjálfsvígsforvarnir.

Starfsfólk Rekstrarvara tók þátt í Gulum september með því að klæðast gulu og sýna samstöðu með mikilvægu átaki um geðrækt og sjálfsvígsforvarnir.



Rekstrarvörur voru meðal 163 fyrirtækja, stofnana og sveitarfélaga sem hlutu viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir kynjajafnvægi í efsta lagi stjórnunar. Viðurkenningarnar voru afhentar við hátíðlega athöfn í Hátíðasal Háskóla Íslands þann 14. október, þar sem yfirskriftin í ár var „Losum um hnútinn“.


Rekstrarvörur hafa enn á ný hlotið viðurkenninguna Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri frá Viðskiptablaðinu og Keldunni. RV hefur verið á lista Fyrirmyndarfyrirtækja samfleytt frá árinu 2017.


Áratuga reynsla og þekking býr innan Rekstrarvara og nú ætlum við að gefa meira af henni pláss á RV.is. Nýr frétta- og fróðleikshluti sameinar fræðslu, reynslu, nýjungar og fréttir úr ólíkum áttum starfseminnar.