

Hróðmar tekur við sem ráðgjafi kaffilausna
Hróðmar Eydal hefur tekið við nýju hlutverki sem ráðgjafi kaffilausna hjá Rekstrarvörum. Með áralangri reynslu úr verslun fyrirtækisins, öflugri þjónustulund og víðtækri þekkingu á kaffilausnum mun hann leiða áfram ráðgjöf til viðskiptavina um kaffivélar, kaffi og heildarlausnir fyrir vinnustaði.

