

20347
Melitta M170 MT kaffivél
Til í vefverslun
Uppselt í verslun
-Langtímaleiga eða Sala- Melitta M170 MT kaffivél
Melitta M 170 MT hitabrúsavél tekur lítið pláss og þarfnast ekki fasts vatnstengis. Þetta eru aðeins tveir af þeim kostum sem gera vélina að frábærum valkosti fyrir veitingarekstur, mötuneyti eða fundaraðstöðuna.
Hún er færanleg og hentar því vel fyrir ýmsa viðburði, ráðstefnu- og fundarherbergi. Fyrirferðarlítil hönnunin gerir hana einnig að hentugum kosti þar sem pláss er takmarkað.
Húsið er úr krómi og fellur vel að ólíku umhverfi með látlausri og snyrtilegri hönnun.
Fleiri kostir:
Mikil afköst: Melitta 170 MT getur útbúið allt að 125 bolla af kaffi á aðeins einni klukkustund. Hún hentar því sérstaklega vel þegar þörf er á miklu magni af kaffi, til dæmis í morgunverði, á fundum eða við aðra stærri viðburði. Tekur um 7 mín.að hella uppá 2,2l (einn brúsa)
Fljótlegt og einfalt: Með Melitta 170 MT er auðvelt að útbúa gott kaffi á skömmum tíma og tryggja gestum ferskt og bragðgott kaffi.
Sjálfvirkar aðgerðir:
Melitta 170 MT hitabrúsavélin er búin ýmsum sjálfvirkum eiginleikum sem einfalda notkun og tryggja stöðug gæði. Hún er meðal annars með viðvörun sem minnir á þegar þörf er á hreinsun og hitastýringu sem kemur í veg fyrir að kaffið ofhitni og verði of beiskt.
Hraðhitari tryggir skjóta upphitun vatnsins og rafræn stjórnun gerir vélina einfalda og þægilega í notkun.
Hæð:61cm - Breidd:21cm -Dýpt:42cm
ATH hitabrúsi fylgir ekki kaffivélinni
Við bjóðum einnig upp á langtímaleigu á þessari vöru. Nánari upplýsingar á kaffi@rv.is
Tengdar vörur
Skoða allar tengdar vörur

